Published miðvikudagur, maí 30, 2012 by Stebbi Twist.
Nú er senn maí liðinn og alltaf styttist og styttist í
gleðina miklu. Bara sléttur mánuður og ýmis hafa víst misst legvatnið af spenningi. En dveljum ekki lengur við þetta og komum okkur að máli málanna þessa vikunna.
Málið:
Stebbi Twist
Eldri Bróðurinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Plástradrottingin
Hvergerðingurinn
Bílar:
Willy
Gullvagninn
Þetta verður þá ekki lengra þessa vikuna. Heyrumst að viku liðinni
Kv
Skráningardeildin
|
Published miðvikudagur, maí 23, 2012 by Stebbi Twist.
Þetta er
allt saman óðum að bresta á og því ekki úr vegi að birta
skráningalista þessa vikuna
Sól í hjarta:
Stebbi Twist
Eldri Bróðurinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Plástradrottingin
Hvergerðingurinn
Bullumótorar:
Willy
Gullvagninn
Þá er það barasta ekki fleira þessa vikuna
P.s
Lítill fugl hvíslaði því að
Bergmann og hugsanlega
Brabrasonurinn komi til með að enda í
undirbúnings-og eftirlitsferð í
Bása um komandi helgi. Er það vel og verði af því er beðið eftir skýrzlu um ástand svæðisins
|
Published þriðjudagur, maí 22, 2012 by Stebbi Twist.
Nú um síðustu helgi skundaði
Litli Stebbalingur í
Skaftafell með
nillahópinn sín í sínu síðustu ferð þar sem ætlunin var að rölta á
Hrútfjallstinda. Með í för voru
tveir aðrir gildir limir úr
V.Í.N. og var það vel. En þarna voru á ferðinni:
Stebbi Twist
Maggi Móses
Eldri Bróðirinn
Síðan var góðkunningi vor líka með í för en það var:
Eyþór
Eftir að hafa rýnt í
veðurspá á
föstudegi var ákveðið að halda til atlögu við fjallið á laugardagskveldinu. Er risið var úr
tjaldinu á
laugardeginum var fínasta veður og var hóað í
veðurnörd hópsins og eftir smá fundahöld var ákveðið að flýta för og lagt í´ann rétt fyrir 15:00. Við tóku brekkur, snjór, lína, broddar og blíða. Það var svo um 22:30 sem staðið var á toppnum. Líkt og oft vill verða þá var kalt á toppnum en skyggnið var eiginlega magnað. Svo bara bara haldið niður. Eftir 13 tíma ferð var komið aftur í bíl og mikið var svo ljúft að leggjast á dýnuna á m
essudagsmorgninum. Eftir að hafa svo grillað sér hádegismat á sunnudeginum var haldið til
höfuðstaðarins með viðkomu í
sundi á
Hellu. En sé einhver áhugi fyrir hendi þá má skoða myndir
hér
Kv
Háfjalladeildin
|
Published miðvikudagur, maí 16, 2012 by Stebbi Twist.
Þá er komið að enn einum af góðu
skráningarlistunum og þá er bezt að koma sér að efninu þessa vikuna
Góðir gestir:
|
Published mánudagur, maí 14, 2012 by Stebbi Twist.
Nú komandi Þórsdag er frídagur í boði
þjóðkirkjunnar og
Jesús Kr. Jósepssonar. Var bara að spá hvort einhver stemning væri fyrir að gjöra eitthvað skemmtilegt af sér þennan dag. Enda svo daginn í
kvikmyndahúsi. Orðið er amk laust í skilaboðaskjóðunni hér að neðan og þrátt fyrir að fátt hafi verið um svör undanfarin misseri þá gefst maður ekkert upp og reyni að halda lífi hér á
síðunni
|
Published miðvikudagur, maí 09, 2012 by Stebbi Twist.
Það er komið að enn einum listanum þennan mánuðinn og komum okkur bara beint að máli málanna.
Brúður:
Stebbi Twist
Eldri Bróðurinn
Krunka
Bergmann
Frúin
Erfðaprinsinn
Gosi
Danni Djús
Billi
Plástradrottingin
Hvergerðingurinn
Bíló:
Willy
Gullvagninn
Fleira var það ekki þessa vikuna
Kv
Skráningardeildin
|
Published þriðjudagur, maí 08, 2012 by Stebbi Twist.
Nú er ekki nema rúmar tvær vikur í fyrstu svokölluðu ferðahelgi sumarins. Hér er að sjálfsögðu verið að tala um
hvítasunnuhelgina. Það hefur nú löngum tíðkast að
V.Í.N. leggji þá land undir fót og vonandi verður ekki undantekning á því þetta árið.
Líkt og margir muna þá er klassíkst að fara
Skaftafell eða
Skaptafell. Básar standa svo sem líka alltaf fyrir sínu. Svo má auðvitað gera eitthvað allt annað.
Eldri Bróðirinn var búinn að stinga upp á því að fara vestur á
Snæfellsnes, Snæfells-og Hnappadalssýzlu, og td að fara á
Kirkjufell, skinna upp á Snæfellsjökull og kafa ofan í hella. Ennig hafði kauði nefnd
Kerlingafjöll þessa sömu helgi. Sjálfum líst
Litla Stebbalingnum ágætlega á Snæfó svo lengi sem
veðurspáin verði nesinu hliðhollt.
Svo eitt sem
undirrituðum hafði líka flogið í hug. Fara á
vesturland eins og
Skorradal. Arka upp á
Skarðsheiði, hjóla í kringum
Skorradalsvatn, skella sér í
Krosslaug og jafnvel tölta á
Skessuhorn. Ef snjóalög verða hagstæð væri jafnvel hægt að fjallaskíðast í norðanverði Skarðsheiði. Kosturinn við þetta prógramm er vonandi að flestir ættu að geta kíkt við og gist þó væri ekki nema eina nótt.
En hvert svo sem verður farið þá sjá vonandi sem flestir sér fært um að mæta með sig og sína
|